Hópur af fólki hlaupandi í rauðum bolum í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka.
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram laugardaginn 20.ágúst næstkomandi. Hægt er að velja um að hlaupa sex mismunandi vegalengdir; maraþon, hálft maraþon, boðhlaup, 10 km, 3 km skemmtiskokk og Krakkamaraþon.
Frá árinu 2003 hefur Reykjavíkurmaraþon verið í umsjón Íþróttabandalags Reykjavíkur. Auk starfsmanna Íþróttabandalagsins koma um 600 sjálfboðaliðar að framkvæmd Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka, flestir þeirra eru úr íþróttafélögunum í Reykjavík.
Forskráning í hlaupið er í fullum gangi á vef hlaupsins marathon.is og verður hún opin til kl.13 fimmtudaginn 18.ágúst. Einnig verður hægt að skrá sig á skráningarhátíð hlaupsins í Laugardalshöll en það er ódýrara að forskrá sig.
Hlauparar í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka geta eins og fyrri ár hlaupið til góðs með því að safna áheitum fyrir ýmis góðgerðarfélög. Áheitasöfnun hlaupsins fer fram á vefnum hlaupastyrkur.is. Þar eru um 3500 hlauparar að safna áheitum fyrir 169 mismunandi góðgerðafélög.