Íþróttabandalag Reykjavíkur stendur fyrir vinnustofu um kynferðislegt ofbeldi og kynferðislega áreitni í íþróttum fimmtudaginn 19. september. Norski sérfræðingurinn, Håvard Øvregård, kemur til landsins og fjallar um mikilvægi reglna og verkferla í tengslum við ofbeldi og áreitni í íþróttum. Lögreglan og Barnavernd kynna hvernig þau geta aðstoðað íþróttahreyfinguna í þessum málaflokki, og ÍTR fer yfir mikilvægi þess að hafa skýra ráðningarsamninga og hvaða bakgrunnsupplýsingar er nauðsynlegt að hafa.
Vinnustofan verður í sal 1 í Laugardalshöll, gengið inn um inngang A, frá kl. 14:00 – 16:10.
Aðgangur er ókeypis og opinn öllum áhugasömum en nauðsynlegt að skrá sig með því að senda póst á verkefni@ibr.is.
Mikilvægt er að sem flest íþróttafélög sendi fulltrúa á vinnustofuna.