Umsóknarfrestur vegna næstu úthlutunar úr Verkefnasjóð ÍBR og Afrekssjóð ÍBR er til 15.september næstkomandi fyrir báða sjóði. Reglugerðir sjóðanna og umsóknareyðublöð má finna hér á ibr.is undir liðnum styrkir.
Verkefnasjóður ÍBR er sjóður til styrktar útbreiðslu og átaksverkefnum í íþróttastarfi í Reykjavík. Úthlutun skal sérstaklega taka mið af stefnu ÍSÍ um íþróttir barna og unglinga, stefnu ÍBR og ÍTR og jöfnum möguleika allra til íþróttaiðkunar. Umsóknir skal senda á þar til gerðum eyðiblöðum á netfangið annalilja@ibr.is.
Afrekssjóður ÍBR er sjóður til styrktar afreksíþróttastarfi í Reykjavík. Úthlutun skal sérstaklega taka mið af afreksstefnu ÍBR. Umsóknir skal senda á þar til gerðum eyðiblöðum á netfangið kjartan@ibr.is.
Smellið hér til að finna upplýsingar um styrki sem aðildarfélög ÍBR geta sótt til bandalagsins.