Nú líður senn að páskum og er vakin athygli á því að skólaíþróttahúsin í Reykjavík verða lokuð frá og með dymbilviku og fram yfir páska eða frá 26.mars til 2.apríl. Einnig verður lokað á Sumardaginn fyrsta þann 19.apríl. Vortímabilið í íþróttahúsunum er til og með mánudeginum 30.apríl, eftir það loka húsin og opna ekki aftur fyrr en 1.september.
- Mánud. 26. mars Lokað
- Þriðjud. 27. mars Lokað
- Miðvikud. 28. mars Lokað
- Fimmtud. 29. mars Lokað - Skírdagur
- Föstud. 30. mars Lokað - Föstud. langi
- Laugard. 31. mars Lokað
- Sunnud. 1. apríl Lokað - Páskadagur
- Mánud. 2. apríl Lokað - Annar í páskum
- Þriðjud. 3. apríl Æfingar hefjast að nýju
- Fimmtud. 19. apríl Lokað - Sumard. fyrsti
Gleðilega páska!