Íþróttafólk Reykjavíkur 2021
Íþróttakona og íþróttamaður Reykjavíkur fyrir árið 2021 var tilkynnt í dag í Ráðhúsi Reykjavíkur, einnig var tilkynnt íþróttalið Reykjavíkur fyrir árið 2021.

Íþróttakona Reykjavíkur 2021 er Sandra Sigurðardóttir, knattspyrnukona í Knattspyrnufélaginu Val.
Sandra varð Íslandsmeistari með félagsliðinu sínu Val í sumar. Sandra er leikjahæsti leikmaðurinn í sögu efstu deild kvenna með 314 leiki. Sandra er landsliðsmarkvörður og mun leika með kvennalandsliðinu í knattspyrnu á Evrópumeistaramótinu sem fer fram í Bretlandi sumarið 2022. Sandra átti mjög gott tímabil í ár og stefnir á áframhaldandi afrek. Sandra er góð fyrirmynd og mikilvægur leikmaður í sínum liðum.
Við óskum Söndru Sigurðardóttur til hamingju með titilinn Íþróttakona Reykjavíkur 2021.
Íþróttamaður Reykjavíkur 2021 er Júlían Jóhann Karl Jóhannsson, kraftlyftingarmaður í Glímufélaginu Ármanni.
Júlían varð heimsmeistari í réttstöðulyftu í þungavigtarflokki á HM í kraftlyftingum þegar hann lyfti 380 kg, hann vann með miklum yfirburðum. Júlían varð einnig Evrópumeistari í réttstöðulyftu, einnig vann hann til brons verðlauna í samanlögðu þegar hann lyfti 1.105 kg. Árangurinn er einn besti árangur Íslendings á alþjóðamóti. Júlían vann einnig til gullverðlauna á Reykjavík International Games og er nú kominn með boð á heimsleikana í Alabama á næsta ári í Alabama (World Games 2022).
Við óskum Júlían Jóhanni Karli Jóhannssyni til hamingju með titilinn Íþróttamaður Reykjavíkur 2021.

Íþróttalið Reykjavíkur 2021 er meistaraflokkur karla í Knattspyrnu frá knattspyrnufélagi Víkings.
Víkingur varð Íslandsmeistari og Bikarmeistari karla í knattspyrnu. Víkingur er fimmta liðið á Íslandi til að vinna tvennuna, Íslands- og bikarmeistaratitlana.
Við óskum Víkingum til hamingju með titilinn Íþróttalið Reykjavíkur 2021.

ÍBR óskar öllu íþróttafólki til hamingju með árangurinn á árinu.