| Tryggingamál |
|
|
| Föstudagur, 25. mars 2011 11:24 |
|
Íþróttaslys Íþróttafólk sem slasast á æfingum og í keppnum geta sótt ákveðnar endurgreiðslur v/ útlagðs sjúkra- og slysakostnaðar. Eftirfarandi aðilar bæta hluta af fjárhagslegu tjóni:
Börn og ungmenni fá tjón af völdum slyss, t.a.m. tannlæknakostnað, ekki greiddan af öðrum, nema einhver beri skaðabótaábyrgð á slysinu. Skilyrði skaðabótaábyrgðar eru m.a. að sá sem krafinn er um bætur eigi sök á slysinu. Ef barn eða ungmenni slasast í óhappi sem engum verður kennt um ber sá sem stendur fyrir félags- og tómstundastarfinu þess vegna ekki ábyrgð á því. Sá sem stendur fyrir starfinu ber hins vegar skaðabótaábyrgð ef starfsmenn hans, launaðir eða ólaunaðir, hafa sýnt af sér sök, t.a.m. vanrækslu við að gæta barna, og það veldur slysi. Sá sem stendur fyrir starfinu, eða umráðamaður aðstöðu, getur orðið bótaskyldur ef aðbúnaður er ófullnægjandi og slys verður vegna þess. Börn og ungmenni geta þurft að bæta öðrum börnum tjón sem þau valda þeim. Heimilistryggingar fela langoftast í sér ábyrgðartrygginguvegna tjóns sem börn valda og sumar fela líka í sér slysatryggingar vegna tjóns sem börn valda og sumar fela líka í sér slysatryggingu vegna slysa sem börn verða fyrir í frítíma. Þar sem að slíkum slystryggingum sleppir er barn eða ungmenni ekki tryggt í félags- og tómstundastarfinu frekar en þegar það er úti að leik. Frekari upplýsingar um tryggingamál félagasamtaka má finna í bæklingi sem gefinn var út af menntamálaráðuneytinu haustið 2010: http://www.menntamalaraduneyti.is/frettir/Forsidugreinar/nr/5685 |
| Síðast uppfært: Fimmtudagur, 01. september 2011 15:10 |