Forsíða Merki ÍBR
Merki ÍBR Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Þriðjudagur, 24. nóvember 2009 00:00

Á þingi Íþróttabandalags Reykjavíkur í febrúar 2009 var samþykkt að taka í notkun nýtt merki. Merkið hannaði Eva Hrönn Guðnadóttir, grafískur hönnuður. Hugmyndir um að endurnýja merki ÍBR komu fram snemma á þessari öld. Ákveðnir annmarkar voru við notkun gamla merkisins í sambandi við vefnotkun og prentun þar sem merkið var ekki hannað með nafni bandalagsins og fáir þekktu fyrir hvað það stóð án texta. Merkið hefur einnig stundum valdið misskilningi þegar hópar á vegum ÍBR hafa farið erlendis til þátttöku í íþróttamótum.

Nýtt merki ÍBR er til í tveimur útgáfum, með nafni fyrir neðan og nafni til hliðar.
Smellið á merkin til að fá stærri mynd.



 



Gamla merki Íþróttabandalags Reykjavíkur var hannað af Halldóri Péturssyni en hann var fenginn til að teikna merkið í tilefni af 10 ára afmæli bandalagsins 1954. Gamla merkið verður eitthvað notað áfram a.m.k við heiðursveitingar. Smellið á merkið til að fá upp stækkaða mynd.

 

 

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 03. júní 2010 14:25
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700