| Reglugerð um heiðursviðurkenningar |
|
|
| Þriðjudagur, 05. maí 2009 17:28 |
|
Heiðursviðurkenningar ÍBR eru í tveimur gráðum: Gullstjarna ÍBR Gullmerki ÍBR Framkvæmdastjórn ÍBR er heimilt að heiðra forystumenn eða íþróttamenn, þegar ástæða þykir til, en þó má ekki veita sama manninum nema einu sinni hverja gráðu. Gullstjörnu ÍBR má sæma þann, sem unnið hefur um langt árabil að stjórnar- eða skipulagsmálum reykvískra íþróttasamtaka í heild eða einstakra íþróttafélaga innan bandalagsins, af einstökum dugnaði og kostgæfni. Heiðurskjal, undirritað af framkvæmdastjórn ÍBR, skal fylgja viðurkenningunni. Gullmerki ÍBR má veita þeim, sem innt af hendi hafa langvarandi og mikil störf í þágu reykvískra samtaka eða íþróttafélaga innan ÍBR. Einnig reykvískum íþróttamönnum, sem vinna mikil afrek í alþjóðlegum íþróttamótum. Tillaga um veitingu viðurkenningar ÍBR skal lögð fram skriflega á fundi framkvæmdastjórnar ÍBR. Til þess að veita heiðursviðurkenningu ÍBR þarf samþykki ¾ framkvæmdastjórnar ÍBR. Heiðursviðurkenningar skulu númeraðar og skráðar í sérstaka bók. |
| Síðast uppfært: Þriðjudagur, 05. maí 2009 17:33 |