| Íslandsmeistarar fá viðurkenningar |
|
|
| Miðvikudagur, 18. janúar 2012 23:19 |
|
Föstudaginn 20.janúar fá Íslandsmeistarar Reykjavíkur 2011 viðurkenningu fyrir árangur sinn. Viðurkenningarhátíðin fer fram í Laugardalshöll og hefst kl.18:00. Eftir afhendingu viðurkenninganna er Íslandsmeisturum og gestum boðið að þiggja veitingar sem verða bornar fram kl.19:00. Strax í kjölfarið eða kl.19:45 hefst síðan opnunarhátíð Alþjóðlegu Reykjavíkurleikanna 2012 þar sem meðal annars Páll Óskar Hjálmtýsson og Regína Ósk munu koma fram. Íslandsmeistararnir og aðrir gestir eru hvattir til að staldra við í Laugardalshöllinni og fylgjast með glæsilegri opnunarhátíð sem áætlað er að ljúki um kl.20:30. Það eru Íslandsmeistarar Reykjavíkur í efsta styrkleikaflokki fæddi 1998 og eða fyrr sem fá viðurkenningu frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur að þessu sinni. Þó eru einstaklingar í öldungaflokki ekki verðlaunaðir. Heildarfjöldi þeirra sem heiðraðir verða er 564. Smellið hér til að skoða lista yfir þá íþróttamenn sem fá viðurkenningu á hátíðinni á föstudag. |