Íþróttaskóli fyrir 6 ára hefur verið gjaldfrjáls fyrir öll börn í 1.bekk í grunnskólum Reykjavíkur þar sem starfrækt eru frístundaheimili um nokkurra ára skeið. Frá og með haustinu 2010 verður Íþróttaskóli í boði fyrir börn í 1. og 2.bekk í grunnskólum Reykjavíkur.
Skráning í Íþróttaskóla fer fram hjá íþróttafélaginu í þínu hverfi en frístundaheimili skólanna geta einnig gefið upplýsingar.
Veturinn 2009-2010 var íþróttaskólinn er starfræktur í 33 grunnskólum, rekinn af 10 íþróttafélögum með alls 1116 börnum. Það er u.þ.b. 90% af heildar árgangi 6 ára barna. Hægt er að nálgast fræðslubæklinginn um íþróttaskóla með því að smella á myndina.

Íþróttaskóli fyrir 3-5 ára
Íþróttaskóli fyrir börn á aldrinum 3-5 ára er starfræktur víðsvegar á Reykjavíkursvæðinu.
Upplýsingar um íþróttaskóla hjá eftirfarandi félögum má finna á vefsíðum þeirra.