Forsíða Barna- og unglingaíþróttir Íþróttaskóli fyrir 6-7 ára
Íþróttaskóli fyrir 6-7 ára Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Þriðjudagur, 04. maí 2010 15:01

Íþróttaskóli fyrir 6 ára hefur verið gjaldfrjáls fyrir öll börn í 1.bekk í grunnskólum Reykjavíkur þar sem starfrækt eru frístundaheimili um nokkurra ára skeið. Frá og með haustinu 2010 verður Íþróttaskóli í boði fyrir börn í 1. og 2.bekk í grunnskólum Reykjavíkur.

Veturinn 2009-2010 var íþróttaskólinn er starfræktur í 33 grunnskólum, rekinn af 10 íþróttafélögum með alls 1116 börnum. Það er u.þ.b. 90% af heildar árgangi 6 ára barna. 

Hægt er að nálgast fræðslubæklinginn um íþróttaskóla með því að smella á myndina.

Skráning í Íþróttaskóla fer fram hjá íþróttafélaginu í þínu hverfi en frístundaheimili skólanna geta einnig gefið upplýsingar. Eftirfarandi er listi yfir íþróttafélögin sem sjá um íþróttaskóla ásamt upplýsingum um hvaða skólar tilheyra hverju þeirra.

Fjölnir
Borgarskóli, Engjaskóli, Foldaskóli, Hamraskóli, Húsaskóli, Korpuskóli, Rimaskóli og Víkurskóli.

Fylkir
Ártúnsskóli, Árbæjarskóli, Selásskóli og Norðlingaskóli.

Fram
Álftamýrarskóli og Hvassaleitisskóli.
Ingunnarskóli og Sæmundarskóli í Grafarholti.

ÍR
Breiðholtsskóli, Fellaskóli, Hólabrekkuskóli, Seljaskóli og Ölduselsskóli.

KR
Grandaskóli, Melaskóli og Vesturbæjarskóli.

Ungmennafélag Kjalnesinga
Klébergsskóli

Valur
Austurbæjarskóli, Háteigsskóli og Hlíðaskóli.

Víkingur
Fossvogsskóli og Breiðagerðisskóli

Þróttur og Ármann
Langholtsskóli, Laugarnesskóli og Vogaskóli

Verkefnisstjóri Íþróttaskóla 6-7 ára á skrifstofu Íþróttabandalags Reykjavíkur er Kjartan Freyr Ásmundsson ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ).

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 04. maí 2010 15:23
 

Könnun

Til hvers notar þú heimasíðu ÍBR?
 

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700