| Ánægjuvogin |
|
|
| Þriðjudagur, 04. maí 2010 16:10 |
|
Byrjað var á því að leggja fyrir iðkendur hverfafélaganna í Reykjavík ánægjukönnun. Niðurstöður könnunarinnar voru svo kynntar fyrir félögunum og stjórn Íþróttabandalagsins. Í stuttu máli segja að félögin hafi komið mjög vel út þar sem að yfir 90% iðkenda voru ánægð með starfið og þjálfarana. Í kjölfar könnunarinnar útbjó Viðar, í samstarfi við hverfafélögin og Íþróttabandalagið, fræðsluefni með leiðum til að auka ánægju iðkenda enn frekar. Um er að ræða lítinn leiðarvísi í A6 broti sem er hugsaður sem viðbót við það sem ÍBR, ÍSÍ og aðrir hafa gefið út í fræðslumálum með enn frekari áherslu á ánægjuþáttinn. Smellið á myndina til að skoða leiðarvísinn á pdf formi. Þrátt fyrri að búið sé að gera eina könnun og gefa út leiðarvísi er verkefninu Ánægjuvoginni ekki lokið. Í júnímánuði 2010 má vænta niðurstaða úr rannsókninni "Ungt fólk" sem Rannsókn og Greining leggur árlega fyrir 5.-10.bekk. Í rannsókninni þetta árið hefur verið bætt við breytum og spurningum sem tengjast ánægju iðkenda og íþróttafélögunum í Reykjavík. Markmiðið er að fá sem gleggsta mynd af íþróttastarfinu í Reykjavík með það fyrir augum að bæta það enn frekar og koma í veg fyrir óþarfa brottfall ungmenna úr íþróttastarfi. Það kemur okkur hjá Íþróttabandalagi Reykjavíkur ekki á óvart hversu ánægðir iðkendur eru með íþróttastarfið og þjálfarana sína. Um árabil hefur markvisst verið unnið að því að efla starfið t.d. með gerð kennslu- og íþróttanámskráa. Smelltu hér til að skoða dæmi um metnaðarfullar kennsluskrár félaganna og hér til að skoða Íþróttanámskrá ÍBR.
|
| Síðast uppfært: Miðvikudagur, 05. maí 2010 10:22 |