Ánægjuvogin Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa

Ánægjuvogin - LeiðarvísirHaustið 2009 fór Íþróttabandalag Reykjavíkur af stað með verkefni sem snýr að því að auka ánægju iðkenda af íþróttastarfinu í samstarfi við Viðar Halldórsson, íþróttafélagsfræðing hjá Háskólanum í Reykjavík. Verkefnið er kallað Ánægjuvogin og er í stórum dráttum tvíþætt. Annarsvegar kannanir á ánægju iðkenda í íþróttafélögum og hinsvegar útgáfa á fræðsluefni með leiðum til að auka ánægju iðkenda.

Byrjað var á því að leggja fyrir iðkendur hverfafélaganna í Reykjavík ánægjukönnun. Niðurstöður könnunarinnar voru svo kynntar fyrir félögunum og stjórn Íþróttabandalagsins. Í stuttu máli má segja að félögin hafi komið mjög vel út þar sem að yfir 90% iðkenda voru ánægð með starfið og þjálfarana.

Í kjölfar könnunarinnar útbjó Viðar, í samstarfi við hverfafélögin og Íþróttabandalagið, fræðsluefni með leiðum til að auka ánægju iðkenda enn frekar. Um er að ræða lítinn leiðarvísi í A6 broti sem er hugsaður sem viðbót við það sem ÍBR, ÍSÍ og aðrir hafa gefið út í fræðslumálum með enn frekari áherslu á ánægjuþáttinn. Smellið á myndina til að skoða leiðarvísinn á pdf formi.

Það kemur okkur hjá Íþróttabandalagi Reykjavíkur ekki á óvart hversu ánægðir iðkendur eru með íþróttastarfið og þjálfarana sína. Um árabil hefur markvisst verið unnið að því að efla starfið t.d. með gerð kennslu- og íþróttanámskráa. Smelltu hér til að skoða dæmi um metnaðarfullar kennsluskrár félaganna og hér til að skoða Íþróttanámskrá ÍBR.

Í könnun Rannsóknar og Greiningar árið 2010 var bætt við breytum og spurningum sem tengjast ánægju iðkenda og íþróttafélögunum í Reykjavík. Markmiðið var að fá sem gleggsta mynd af íþróttastarfinu í Reykjavík með það fyrir augum að bæta það enn frekar og koma í veg fyrir óþarfa brottfall ungmenna úr íþróttastarfi.

Smellið hér til að skoða skýrslu með niðurstöðum úr könnuninni "Ungt fólk" sem gerð var fyrir Íþróttabandalag Reykjavíkur.

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 06. október 2011 15:25
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700